Lýsing
Hinn eini sanni Tripp Trapp stóll sem vex með barninu. Hannaður af Peter Opsvik árið 1972. Vönduð og endingargóð eik, framtíðareign sem nýtist barninu alla ævi!
Stóllinn er stilltur á mismunandi hátt miðað við aldur barnsins og má því segja að hann fylgi þroska barnsins vel.
Stóllinn þolir allt að 110 kíló og hentar jafnt fullorðnum sem börnum. Frá 6 mánaða til 2 ára er ætlast til að ungbarnasett sé á stólnum og mælst er til að beisli sé notað með.