Verslun í dag: 10.00-18.00Opið núna
← Allar tilkynningar
Innköllun

MIKILVÆGAR UPPLÝSINGAR – BRITAX RÖMER BABY-SAFE PRO

Vörur sem um ræðir

  • BRITAX RÖMER BABY-SAFE PROFramleiðslutímabil: 26. desember 2025 - 30. september 2026.

MIKILVÆGAR UPPLÝSINGAR – BRITAX RÖMER BABY-SAFE PRO

Britax Römer hefur nú tilkynnt um innköllun á ákveðnum BABY-SAFE PRO ungbarnabílstólum í kjölfar niðurstaðna úr ADAC-prófun.

Innköllunin varðar ákveðna stóla sem framleiddir voru á tímabilinu 26. desember 2025 til 30. september 2026.

Mikilvægt er að taka fram að ekki falla allir stólar sem framleiddir voru á þessu tímabili undir innköllunina. Britax Römer hefur opnað sérstaka vefsíðu þar sem eigendur BABY-SAFE PRO geta athugað hvort þeirra stóll falli undir innköllunina. Við hvetjum alla eigendur BABY-SAFE PRO til að athuga sinn stól á vefsíðunni.

Hvernig athugar þú þinn stól?

Farðu inn á https://www.baby-safe-check.com og sláðu inn raðnúmer stólsins.Raðnúmerið er að finna á vörumerkimiða undir stólnum. Á vefsíðunni eru einnig leiðbeiningar um hvar það er staðsett.

Ef stóllinn þinn fellur undir innköllunina færðu þar leiðbeiningar frá Britax Römer um næstu skref og hvaða úrræði standa til boða.

Hvað með notkun stólsins á meðan?

Samkvæmt leiðbeiningum Britax Römer má áfram nota BABY-SAFE PRO í uppréttri stöðu á VARIO BASE 5Z eða festa stólinn með þriggja punkta bílbelti án base, í samræmi við notkunarleiðbeiningar framleiðanda. Ekki skal nota stólinn í mest hallandi stöðu á VARIO BASE 5Z á meðan beðið er eftir úrbótum.

Ef þú ert óörugg/ur eða hefur spurningar er þér velkomið að hafa samband við okkur hjá Fífu með því að senda tölvupóst á fifa@fifa.is eða hringja í okkur.

Við munum áfram fylgjast með málinu og koma frekari upplýsingum á framfæri eftir því sem þær berast frá Britax Römer.